Skepnufólk

Harpa Rún Kristjánsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK

Eldáin rennur niður dalinn eins og þráður í gegnum líf sveitunganna. En það er þungi í straumhljóðinu. Æskuvinirnir í dalnum eru bornir og barnfæddir með bændablóð í æðum og trúa á sauðkindina öðru fremur. Enginn þó meira en Ásta sem kann betur við skepnurnar en mannfólkið.

„Í klettunum fyrir neðan þau stóð sú kollótta og titraði. Hún gjóaði augunum í sífellu upp til mannskepnanna og niður á eftir lambinu sínu, milli þess sem hún nuddaði höfðinu við klettinn. Kannski velti hún því líka fyrir sér hvort þetta hefði verið þess virði. Uppi í gljúfrinu söng Eldáin við hamrana. Drungalegan söng um dapurlega fyrirboða.“

Eldáin rennur niður dalinn eins og þráður í gegnum líf sveitunganna. En það er þungi í straumhljóðinu. Æskuvinirnir í dalnum eru borin og barnfædd með bændablóð í æðum og trúa á sauðkindina öðru fremur. Engin þó meira en Ásta sem kann betur við skepnurnar en mannfólkið. Þegar Óttar snýr heim úr dýralæknanámi eru fjórmenningar æskuáranna sameinaðir á ný. En þau eru ekki ung lengur og lífið hefur hert þau. Hringrás lífsins mun brátt raskast og bændurnir neyðast til þess að horfast í augu við sjálf sig í nýjum veruleika og án þess sem þau standa og lifa fyrir.

Skepnufólk er önnur skáldsaga höfundar. Í henni rýnir hún áfram í bændasamfélagið innan frá með þeim áskorunum sem það felur í sér í nútímanum. Fyrsta bók hennar, Kynslóð, segir frá þeim sem þurfa að ákveða hvort þau vilji fara eða vera. Skepnufólk er um fólkið sem var um kyrrt og tekur afleiðingum þess. Fólkið sem lifir fyrir skepnurnar sínar og tekst á við skepnuna í sjálfu sér.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Skepnufólk

Skepnufólk

6,990 ISK
6,990 ISK 0 ISK