Skólaslit 2: Dauð viðvörun

Ævar Þór Benediktsson

4,690 ISK
4,690 ISK 5,990 ISK

Ár er liðið frá því að hópur hugrakkra krakka gjörsigraði myrkraverur sem höfðu lagt undir sig stóran skóla á Reykjanesi. Allt endaði vel og allir gátu andað léttar. Eða hvað? Þegar unglingadeild skólans skellir sér í ferðalag út á land kemur fljótlega í ljós að enginn er óhultur. Allra síst krakkarnir í öftustu rútunni …

Skólaslit 2: Dauð viðvörun eftir Ævar Þór Benediktsson er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Skólaslita. Sagan birtist fyrst sem ógnvekjandi hrekkjavökudagatal en kemur nú út á bók – sem lesendur munu tæta í sig. Ari H.G. Yates teiknar hrollvekjandi myndir.

Skólaslit voru tilnefnd til Bókaverðlauna barnanna auk þess sem verkefnið hefur hlotið fjölda viðurkenninga.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Skólaslit 2: Dauð viðvörun

Skólaslit 2: Dauð viðvörun

4,690 ISK
4,690 ISK 5,990 ISK