Snjór í paradís kilja
4,290 ISK
Höfundur Ólafur Jóhann Ólafsson
Meginstef þessarar áhrifamiklu bókar eru nánustu sambönd fólks; hjóna, foreldra og barna, elskhuga og vina; og hvernig hið leyndasta í lífi sérhvers manns, það sem hugur einn veit, getur breytt öllu komi það upp á yfirborðið.Í bókinni er fjallað um ástríður og þráhyggju, djúpa ást í meinum og fengist við þær tilvistarspurningar sem allir glíma við: Er ást skilyrðislaus eða hvar liggja mörkin? Hversu lengi getur fortíðin komið í bakið á okkur? Skipta blóðbönd máli?
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur lengi verið einn ástsælasti rihöfundur þjóðarinnar og hafa bækur hans hrifið lesendur heima og erlendis. Baltasar Kormákur vinnur nú að kvikmynd eftir skáldsögu hans, Snertingu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ráðgert er að frumsýna myndina árið 2024. Ólafur Jóhann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006, O. Henry verðlaunin árið 2008 og hefur auk þess hlotið tilnefningu til IMPACverðlaunanna og Frank O'Connorverðlaunanna