Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Snorri Hjartarson kvæðasafn
2,990 ISK
Höfundur Snorri Hjartarson
Skáld er eg ei, en huldukonan kallar ´ Á þessum hógværu orðum hóf skáld sem við höfum síðan talið skáld skálda metnaðarfyllsta kvæði sitt. Sumir menn virðast á einhvern hátt fæddir með þessum ósköpum, geta ekki orðið annað en skáld, og bókmenntasagan geymir líka mörg dæmi um skáld sem endurspegla skáldskapinn með allri framkomu sinni. List þeirra og persónuleiki verða eitt og hið sama. Þá er enginn klofningur á milli manns og skálds heldur fullkomin eining. Slíkur maður var Snorri Hjartarson. Öll hans framkoma og öll hans list vottaði um óvenju hreinlyndan og heilsteyptan mann, en jafnframt var ljóst að hann bar ekki sín hjartansmál utan á sér. Þau tjáði hann í ljóðum sínum. Og það duldist engum sem kynntist Snorra að hann og ljóð hans urðu ekki að skilin, ljóðin voru órjúfanlegur hluti af persónu hans. Sérhver ljóðelskur lesandi getur þess vegna ímyndað sér hver maður Snorri
var.
var.