Sofum betur
Karen Williamson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Það er mikilvægur fundur um miðjan dag og þú getur með engu móti haldið augunum opnum, svefninn sækir á. En um dimmar nætur liggur þú andvaka í rúminu, starir á verkjaraklukkuna-það stirnir á sjálflýsandi tölustafina og þú nærð ekki að þagga niður í þungmeltum hugrenningum. Hverju sem um er að kenna- álagi á vinnustað eða háværum hrotum ástvinar- hafa allir upplifað þá raun að fá ekki nægan svefn. Ég man að ég var svo alvarlega vansvefta þegar börnin mín voru á fyrsta ári að ég mundi tæpast hvað ég hét. Vitaskuld lenti allt í handaskolum, sokkarnir enduðu í ísskápnum og mjólkin í kommóðunni. Næði ég að komast í gegnum daginn án þess að valda öðrum alvarlegum skaða var það mikill persónulegur sigur. Sofum betur mun vísa þér veginn að framtíðarlausn á þeim alvarlega vanda að fá ekki nægan svefn.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Sofum betur