Söguþættir landpóstanna

Helgi Valtýsson

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK

Landpóstar urðu þekktir menn á sinni tíð og nutu virð­ingar fyrir hreysti og ósérhlífni. Í vetrargaddi og ófærð, skammdegismyrkri og stórhríð, brutust þeir yfir heiðar og fjalladali og létu sér fátt fyrir brjósti brenna. Þeim var líka einatt vel fagnað þegar þeir riðu í hlað og tilkynntu komu sína með því að blása í póstlúðurinn.

Söguþættir landpóstanna nutu um áratuga skeið mikilla vinsælda en bækurnar hafa lengi verið ófáanlegar. Helgi Valtýsson safnaði þar saman frásögnum fjölmargra landpósta og hafa ýmsar þeirra orðið skáldum og rithöfundum innblástur og yrkisefni, auk þess sem hesta- og göngufólk hefur fetað slóðir þeirra. Hér birtist úrval úr þáttunum sem veita innsýn í heim sem að hluta til er horfinn og hlutskipti manna sem hvað eftir annað lögðu líf sitt að veði, fyrir lítil laun, til þess að koma pósti lands­ manna til skila.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Söguþættir landpóstanna

Söguþættir landpóstanna

4,990 ISK
4,990 ISK 0 ISK