Sporbaugar
4,490 ISK
Höfundur Samanhta Harvey
Í þessari hrífandi skáldsögu er lýst einum sólarhring í lífi sex geimfara á ferð um sporbauga jarðar. Sagt er frá lífinu í geimstöðinni þar sem geimfararnir skiptast á skoðunum, útbúa þurrkaðar máltíðir, svífa um í þyngdarlausum svefni og stunda líkamsæfingar. Brugðið er upp svipmyndum af jarðnesku lífi geimfaranna en umfram allt er bókin þó um einstaka upplifun þeirra af því að fara um geiminn á ógnarhraða og fylgjast með jörðinni snúast undir þeim, stjörnumerkjum vetrarbrautarinnar og sextán sólarupprásum og sólsetrum. Hrífandi lofsöngur til umhverfis okkar og jarðarinnar, ritaður á fögru, litríku máli.
Árni Óskarsson íslenskaði.
BÓK ÁRSINS 2024:
Sunday Times, Guardian, Financial Times, Times, Daily Mail, Daily Mail, New Statesman, Oprah Daily, Chicago Tribune, Globe and Mail
Breski skáldsagnahöfundurinn Samantha Harvey (f. 1975) er margverðlaunuð fyrir skáldsögur sínar. Sporbaugar er fyrsta bókin eftir hana sem kemur út á íslensku. Auk hinna virtu Booker-verðlauna hrepptu Sporbaugar m.a. Hawthornden-verðlaunin auk þess að vera tilnefnd til Orwell-verðlaunanna og Ursula K.Le Guin-verðlaunanna.