Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Stiklur um undur Íslands

6,490 ISK

Höfundur Ómar Ragnarsson og Friðþjófur Helgason

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Ómar Ragnarsson þarf vart að kynna fyrir þjóðinni, en vandfundinn er sá Íslendingur sem hefur verið eins mikið á ferð og flugi og hann. Í lofti, á láði og legi hefur hann ferðast um allt Ísland þvert og endilangt og fetað nær allar þær ótroðnu slóðir sem fyrirfinnast í náttúru landsins. Þau eru án vafa fá sem skilið hafa eftir sig spor jafn víða og Ómar okkar Ragnarsson.

Ómar á sér langan og glæstan feril sem fjölmiðlamaður og skemmtikraftur en þegar íslensk náttúra hefur átt undir högg að sækja stendur hann oftar en ekki fremstur í eldlínunni. Því skyldi engan hafa undrað að Dagur íslenskrar náttúru var stofnsettur 16. september árið 2011, á afmælisdegi Ómars, honum til heiðurs.

Friðþjófur Helgason á sér langan og blómlegan feril í ljósmyndun. Hann hefur unnið fyrir flesta prentmiðla hér heima og að auki getið sér gott orð sem kvikmyndatökumaður.