Stúlka, kona, annað

Bernardine Evaristo

3,990 ISK
3,990 ISK

Stúlka, kona, annað segir frá lífi og veruleika tólf ólíkra persóna – flestar þeirra eru þó þeldökkar, flestar eru breskar, flestar eru konur – sem tengjast á einhvern hátt. Miðaldra lesbískt leikskáld, uppreisnargjörn unglingsstúlka, skúringakona með háskólapróf í stærðfræði, ung glæsikona á framabraut í viðskiptalífinu, norðurensk bóndakona á tíræðisaldri, kynsegin áhrifavaldur, íhaldssöm hvít miðstéttarkona … Í gegnum sögur af baráttu, rasisma, femínisma, kynvitund, elskendum, kynlífi, feðraveldi, pólitík, velgengni og vandamálum kynnist lesandinn uppruna þeirra, fortíð og umhverfi.

Fjörleg og tímabær nútímasaga sem fékk meðal annars Booker-verðlaunin 2019 og var útnefnd skáldsaga ársins á British Book Awards sama ár, auk þess sem Evaristo var valin höfundur ársins þar.

Bernadine Evaristo hefur skrifað fjölda bókmenntaverka sem hlotið hafa mikið lof. Hún er prófessor í ritlist við Brunel University í London. Helga Soffía Einarsdóttir þýddi.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Stúlka, kona, annað

Stúlka, kona, annað

3,990 ISK
3,990 ISK