Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Sumac

9,990 ISK 4,999 ISK

Höfundur Þráinn Freyr Vigfússon

„Með glæsi­legri mat­reiðslu­bók­um sem komið hafa út hér­lend­is. Bók­in er veiga­mikið yf­ir­lits­rit yfir mat­ar­gerðina á Sumac sem er í senn aðgengi­leg og laus við alla til­gerð.“ - Morgunblaðið

Sumac hefur verið einn vinsælasti veitingastaður landsins um árabil og nú lítur matreiðslubók staðarins dagsins ljós. Áhersla er lögð á ferskt og gott hráefni sem matreitt er undir áhrifum Mið-Austurlanda og Norður-Afríku. Eldur, framandi krydd, fjölbreytileiki og hollar og girnilegar nýjungar eru meginstef bókarinnar sem inniheldur fleiri en hundrað uppskriftir sem prýtt hafa matseðil Sumac. 

Þráinn Freyr Vigfússon hefur starfað á mörgum virtum veitingastöðum á Íslandi og erlendis. Hann opnaði veitingastaðina Sumac og ÓX árið 2017. Þráinn hefur verið valinn kokkur ársins hérlendis, keppt fyrir Íslands hönd í Bocuse d’Or og verið meðlimur og þjálfari kokkalandsliðs Íslands.

Bókina prýða glæsilegar ljósmyndir Heiðdísar Guðbjargar Gunnarsdóttur.

Hér má lesa umfjöllun um bókina á mbl.is

Bókin er send frítt á pósthús eða póstbox. Einnig er hægt að sækja hana í bókabúð Sölku á Suðurlandsbraut 6.