Sumar í Skerjagarðinum

Viveca Sten

7,990 ISK
7,990 ISK 0 ISK

Sænski skerjagarðurinn vekur hlýjar tilfinningar í hjörtum allra sem þangað hafa komið. Og ekki síður þeirra milljóna sem lesið hafa glæpasagnaflokkinn Morðin í Sandhamn eftir Vivecu Sten eða horft á sjónvarpsþættina sem byggðir eru á bókunum.

Í þessari dásamlegu matreiðslubók býður Viveca Sten upp á girnilegt sýnishorn af fjölbreyttri matarhefð á eyjum skerjagarðsins. Þótt Sandhamn sé miðpunktur frásagnarinnar leiðir Viveca lesendur einnig til fagurra eyja í útjaðri skerjagarðsins og lýsir gómsætri matarhefð þeirra. 

Einstök matreiðslubók, glæsilega myndskreytt, þar sem metsöluhöfundurinn Viveca Sten reiðir fram ómótstæðilega rétti en bregður jafnframt upp lifandi svipmyndum af lífi fólks við hafsbrúnina í sumarblíðu sænska skerjagarðsins.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sumar í Skerjagarðinum

Sumar í Skerjagarðinum

7,990 ISK
7,990 ISK 0 ISK