Sumar með Rebekku

Þórarinn Örn Þrándarson

5,990 ISK
5,990 ISK
"Það er erfitt að útskýra, þú verður eiginlega að sjá það berum augum, því þetta er það fallegasta af því sálarlausa sem Guð hefur skapað. Kannski muntu teikna útsýnið einn daginn?" Erik er ungur listmálari sem býr á heimili foreldra sinna í Reykjavík. Móðir Eriks hefur sínar eigin hugmyndir um framtíð hans. Hún kennir honum, hlýðir honum yfir heimanámið, klípur hann í handlegginn ef honum tekst illa til. Árið 1999 verður Erik yfir sig ástfanginn af Rebekku, sem vinnur nálægt skólanum hans. Þrátt fyrir vanþóknun móður Eriks á ástarsambandi þeirra upplifir hann hamingjusömustu daga ævi sinnar. Á mörkum bjartrar framtíðar og nýs lífs á Langafirði er Erik jafnframt á barmi myrkur sem á eftir að umsnúa lífi hans. Sumar með Rebekku er önnur skáldsaga höfundar. Sagan er sögð í tveimur hlutum og er í sömu mund ástarsaga og saga af örvæntingu ungs manns sem reynir að horfast í augu við liðna tíð.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sumar með Rebekku

Sumar með Rebekku

5,990 ISK
5,990 ISK