Sumarbókin

3,990 ISK
3,990 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

miðjan hrygginn hafði forstjórinn látið stinga niður stóru skilti með svörtum bókstöfum: Einkalóð. Landganga óheimil. Við förum í land, sagði amman, og var mjög reið. Það kom óttasvipur á Soffíu. Sjáðu nú til, útskýrði amman. Engin sæmilega uppalin manneskja gengur á land í eyju sem aðrir eiga þegar þeir eru ekki heima. En ef þeir setja upp svona skilti þá gerir maður það, því það er hrein ögrun. Auðvitað, sagði Soffía og bætti við mikilvæga þekkingu sína á lífinu.

Sumarbókin er sígild bókmenntaperla sem segir frá Soffíu litlu og ömmu hennar og sumardvöl þeirra á smáeyju undan strönd Finnlands. Þessi tæra og látlausa en djúpvitra frásögn af örheimi eyjunnar, af gróðrinum og dýralífinu, hafinu og veðrinu og heimspekilegum samræðum ömmu og Soffíu hefur heillað lesendur í næstum hálfa öld.

Tove Jansson skrifaði tíu bækur fyrir fullorðna sem allar hafa staðið í skugganum af geysivinsælum sögum hennar um múmínálfana. Sumarbókin er byggð á sumardvölum hennar og fjölskyldu hennar í finnska skerjagarðinum. Hún kemur nú í fyrsta sinn út á íslensku, í afbragðsþýðingu Ísaks Harðarsonar.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sumarbókin

Sumarbókin

3,990 ISK
3,990 ISK