Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Sumareldhús Flóru

3,990 ISK

Höfundur Jenny Colgan

Jenny Colgan betri en nokkru sinni fyrr!

Flóra MacKensie hefur ekki komið á æskuslóðirnar á skosku eyjunni Mure síðan móðir hennar lést. Nú þarf hún að snúa aftur vegna verkefnis í vinnunni og með í för er yfirmaður hennar Joel sem hún er bálskotin í. Skyndilega er Flóra komin afur á æskuheimilið með bræðrum sínum og föður sem hún hefur varla talað við síðan hún fór burt.

Dag einn finnur Flóra gamla stílabók með uppskriftum móður sinnar og um leið kviknar aftur áhugi og ástríða hennar fyrir matargerð. Áður en Flóra veit af er hún búin að opna matsölu í gömlu bleiku húsi við höfnina og hún gerir sér grein fyrir að hún verður að horfast í augu við mistök fortíðarinnar áður en hún getur haldið áfram með líf sitt.

Fyrsta bókin af fjórum í nýjum bókaflokki eftir höfund Litla bakarísins við Strandgötu.

Notaleg saga eftir skoska metsöluhöfundinn Jenny Colgan sem heillað hefur lesendur um allan heim með hugljúfum, fyndnum og lystaukandi bókum sínum. Sumareldhús Flóru er fimmta bók höfundar á íslensku en áður hafa komið út Litla bókabúðin í hálöndunum og bókaflokkurinn um Litla bakaríið við Strandgötu sem slegið hafa í gegn á Íslandi.