Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Sumarið í sveitinni

3,999 ISK

Höfundur Harpa Rún Kristjánsdóttir, Guðjón Ragnar Jónasson

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Það er fleira en stórbrotin náttúran sem ber fyrir augu þegar ferðast er um sveitir landsins. Í þessari bráðskemmtilegu og fróðlegu bók er að finna fjölmargar spurningar og svör um lífið í sveitinni, auk margvíslegs fróðleiks í máli og myndum.

Einnig eru sagðar sögur af frægum dýrum, meðal annars kúnni Sæunni sem flúði slátrara á sundi og Tryllingi en hann er líklega eini hesturinn sem hefur staðið á tindi Heklu.

Þá eru í bókinni nokkrar MJÖG MIKILVÆGAR varúðarreglur – til dæmis má alls ekki fara á bak þjóðsagnaskepnunni nykri því að hann getur hlaupið með þig út í næstu tjörn með hrikalegum afleiðingum!

Tilvalin bók í ferðalagið sem öll fjölskyldan getur skemmt sér yfir!