Sumarstormur

Steinunn Silja Elvarsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

6,490 ISK
6,490 ISK 0 ISK

Allý er búin með fyrsta árið í menntaskóla og margt hefur breyst hjá henni. Gömlu vinirnir hafa vikið fyrir nýjum sem ekki er víst að sé alltaf treystandi og aðstæður heima eru krefjandi. Mamma hennar glímir við geðræn vandamál og Allý gerir allt sem í sínu valdi stendur til að jafnaldrar hennar komist ekki að því. Þegar pabbi hennar stendur ráðþrota gagnvart aðstæðunum ákveður hann að senda Allý í sveitina til systur sinnar, ákvörðun sem Allý er alls ekki sátt við. 

Í sveitinni er vel tekið á móti Allý en hún er með allt á hornum sér og er staðráðin í að gera vistina erfiða fyrir alla. Systkinin Dagur og Kolbrún eru í sumarvinnu á bænum og það er ljóst að Kolbrúnu þykir ekki mikið til Allýjar koma. Vinátta myndast þó smám saman á milli Allýjar og Dags og eftir því sem sumarið líður gerir hún sér grein fyrir að hún er að falla fyrir honum.

Steinunn Silja Elvarsdóttir er ungur og efnilegur höfundur. Sumarstormur er fyrsta bók hennar. 

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sumarstormur

Sumarstormur

6,490 ISK
6,490 ISK 0 ISK