Sveppahandbókin - ný

Bjarni Didrik Sigurðsson

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK

Sveppahandbókin er ómissandi ferðafélagi þegar haldið er í sveppaleiðangur út í íslenska náttúru. Hér er áttatíu tegundum villtra matsveppa gerð ítarleg skil og jafnframt tuttugu tegundum eitraðra sveppa sem líkjast þeim og ber að varast.

Einnig eru hér hagnýtar upplýsingar um sveppi og sveppatínslu almennt; um útbreiðslu og greiningu tegunda, hvenær best er að tína sveppi, um næringargildi þeirra og hvernig þeir skulu meðhöndlaðir þegar heim er komið.

Höfundur bókarinnar, Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógvistfræðingur, er mikill áhugamaður um sveppi og nýtingu þeirra, og býr yfir hafsjó af fróðleik sem hann miðlar hér á afar aðgengilegan hátt. Hann hefur haldið fjölda námskeiða um sveppi og sveppatínslu sem notið hafa mikilla vinsælda.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Sveppahandbókin - ný

Sveppahandbókin - ný

5,990 ISK
5,990 ISK 0 ISK