Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Svo veistu að þú varst ekki hér

5,490 ISK

Höfundur Íris Ellenberger, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir

Greinasafnið Svo veistu að þú varst ekki hér: Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi er fyrsta íslenska fræðiritið á sviði hinsegin sögu og er óhætt að segja að bókin sé tímamótaverk í íslenskri sagnfræði.

Hún inniheldur sex ritrýndar greinar sem eru fjölbreyttar að efni. Í þeim er fjallað um hinsegin sagnfræði sem fræðilega nálgun á söguna, þýðingar og viðtökur á ljóðum Saffóar á Íslandi, málaferlin gegn Guðmundi Sigurjónssyni sem var dæmdur í fangelsi fyrir „kynvillu“ árið 1924, orðræðu um „listakynvillinga“ á Laugavegi 11 og samkynhneigð sem birtingarmynd hins illa á sjötta áratugnum, sögu og hlutverk bókasafns Samtakanna ´78 og ímynd Íslands sem hinsegin paradísar.

Ritstjórar greinasafnsins eru Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger, en auk þeirra eiga greinar í bókinni Kristín Svava Tómasdóttir, Þorsteinn Vilhjálmsson og Þorvaldur Kristinsson.