Syngjandi steinn

Njörður P. Njarðvík

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

Í þessari bók rýnir skáldið, rithöfundurinn og bókmenntaprófessorinn Njörður P. Njarðvík í 39 ljóð eftir 38 af okkar fremstu skáldum. Njörður greinir uppbyggingu ljóðanna, merkingu þeirra og tilætluð áhrif í samspili orða, hljóms og menningar.

Ljóðrýni þessi á uppruna sinn í kennslu Njarðar í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands og birtist í blöðum á sínum tíma en er hér safnað í eina heild í tímaröð bókmenntasögunnar.

Njörður P. Njarðvík (1936–), prófessor emeritus, hefur sent frá sér fjölda bóka – ljóð, skáldsögur, barnabækur, ævisögur, kennslubækur og fræðirit auk þýðinga. Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir bækur sínar og störf.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Syngjandi steinn

Syngjandi steinn

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK