Það sem eftir er
Virginie Grimaldi
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
4,690 ISK
4,690 ISK
0 ISK
/
Ekkja, ungur heimilislaus maður og kona á flótta undan tilvonandi eiginmanni. Hvað getur þetta þríeyki átt sameiginlegt?
Jeanne er 74 ára og nýorðin ein. Hún situr eftir með sorgina og hundinn Boudine í stóru Parísaríbúðinni sem hún hefur ekki efni á. Théo þorir ekki að láta sig dreyma um framtíðina þar sem hann sefur í neðanjarðarlestinni eða í gömlu bílflaki. Í grænni ferðatösku er það litla sem Iris á. Lélegt húsnæði og illa launað starf eru nýi veruleikinn hennar.
Lífið er stundum erfitt, en getur líka verið svo magnað. Því þegar Jeanne ákveður að leigja Théo og Irisi herbergi bætir hún ekki aðeins eigin fjárhag heldur verður líf þeirra aldrei samt.
Það sem eftir stendur er áhrifamikil og hjartnæm saga skrifuð af næmni um lífið eins og það er: brothætt og fyndið, hugljúft og átakanlegt og fullt af óvæntum augnablikum.
Virginie Grimaldi er einn mest lesni höfundur Frakklands og skáldsögur hennar hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Það sem eftir er
4,690 ISK
4,690 ISK
0 ISK
/