Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Þar sem villtu blómin vaxa

4,790 ISK

Höfundur Louise Strömberg

Maya Björk virðist hafa allt sem nokkur gæti óskað sér – mikilvæga stöðu í farsælu sprotafyrirtæki, unnusta sem hún hefur elskað síðan á námsárunum og líf í miðbæ Stokkhólms sem flestir gætu bara látið sig dreyma um. En á einu sekúndubroti er þetta allt tekið frá henni.

Þegar Maya heldur að líf hennar sé komið í þrot hafnar hún í litla, sænska skerjagarðsbænum Arkösund þar sem hún reynir að finna lífinu nýjan farveg.

Þar sem villtu blómin vaxa er saga um að týna sjálfum sér og finna sig svo á alveg óvæntum stað. Um það sem getur gerst þegar við neyðumst til að sleppa takinu á öllu því sem við höldum að við viljum og eigi að vera, og lærum í staðinn að skilja hvað skiptir í raun og veru máli.

Louise Strömberg er markþjálfi, jógakennari og rithöfundur. Hennar leiðarljós er að leiðbeina fólki um að lifa í sjálfbærni og af hjartans lyst – það gerir hún í gegnum Instagram-síðu sína, bækur, jógatíma og fyrirlestra. Þar sem villtu blómin vaxa er fyrsta skáldsagan hennar.