Þegar Kína gerir árás
Andreas Fulda
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Þegar Taívan fellur: Ógnvekjandi sviðsmynd!
Árið 2027. Kínversk orrustuþota hrapar eftir hættulega loftfimleika í taívönsku loftrými. Í kjölfarið fyrirskipa ráðamenn í Peking árás á Taívan. Bandaríkin, klofin vegna innanlandspólitískra átaka, grípa til varna en allt of seint. Kína hefur þá þegar innlimað Taívan með stuðningi Rússlands, Írans og Norður-Kóreu.
Afleiðingarnar á alþjóðavísu eru skelfilegar: Bandaríkin og Kína berjast um yfirráð í heiminum, þriðja heimsstyrjöldin blasir við og efnahagur Evrópusambandsríkja er í frjálsu falli. Þýskaland verður sérstaklega illa úti vegna mikilla efnahagstengsla við Kína.
Í þessari sviðsmynd greinir þýski stjórnmálafræðingurinn Andreas Fulda hugsanlegar afleiðingar kínverskrar innrásar í Taívan. Jafnframt bendir hann á leiðir til að koma í veg fyrir slík átök.
Björn Bjarnason íslenskaði.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Þegar Kína gerir árás