Þegar við hættum að skilja heiminn
Benjamin Labatut
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Hér segir frá nokkrum af snjöllustu vísindamönnum 20. aldar, lífi þeirra, þráhyggju, hugarórum og rannsóknum, ásamt ófyrirséðum afleiðingum uppgötvana þeirra. Þegar Fritz Haber vann að framleiðslu hins öfluga skordýraeiturs Zyklon hvarflaði ekki að honum að nasistar myndu nota það nokkrum árum síðar til að drepa ættingja hans og milljónir annarra gyðinga í gasklefunum. Stærðfræðingarnir Mochizuki og Grothendieck sökktu sér niður í leyndardóma stærðfræðinnar af brennandi ástríðu þar til skyndilega að þeir hopuðu af hólmi. Eðlis- og stjörnufræðingurinn Karl Schwarzschild varð fyrstur manna til að leysa jöfnur Einsteins um almennu afstæðiskenninguna en fylltist skelfingu þegar hann uppgötvaði óhugnaðinn sem hún sagði fyrir um. Skammtafræðin og óvissulögmál Heisenbergs kipptu stoðunum undan hefðbundinni eðlisfræði, umturnuðu heimsmyndinni og opnuðu dyr að svo örum tæknilegum breytingum að við erum hætt að skilja heiminn.
Benjamin Labatut fæddist í Rotterdam 1980. Hann ólst upp í Haag, Buenos Aires og Líma en er nú búsettur í Chile. Þegar við hættum að skilja heiminn er þriðja bók hans. Hún var tilnefnd til Booker verðlaunanna 2021 og sett á lista New York Times Book Review yfir tíu bestu bækur sama árs.
Hér segir frá nokkrum af snjöllustu vísindamönnum 20. aldar, lífi þeirra, þráhyggju, hugarórum og rannsóknum, ásamt ófyrirséðum afleiðingum uppgötvana þeirra. Skammtafræðin og óvissulögmál Heisenbergs umturnuðu heimsmyndinni og opnuðu dyr að svo örum tæknilegum breytingum að við erum hætt að skilja heiminn
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Þegar við hættum að skilja heiminn