Þegar við lifum

Sigurjón Magnússon

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

8,190 ISK
8,190 ISK 0 ISK

Jakob stendur á tímamótum. Honum vegnar vel í starfi, en sambandið við eiginkonuna, Hrefnu, er orðið erfiðara en áður, og hann hefur fjarlægst stálpaðan son sinn. Þegar sagan hefst föstudag einn síðla vetrar eru þau hjónin á leið í bústað austur í sveitum, og tíðindalaus helgi framundan. En atburður, sem gerist þann sama dag og lætur í fyrstu lítið yfir sér, vekur brátt hjá Jakobi áleitnar spurningar og boðar jafnframt harkaleg hvörf í lífi hans.


Allt frá því Sigurjón Magnússon sendi frá sér skáldsöguna Góða nótt, Silja árið 1997 hefur hann verið meðal okkar fremstu skáldsagnahöfunda. Skáldsaga hans um Kristmann Guðmundsson, Borgir og eyðimerkur, vakti mikla athygli og saga hans Endimörk heimsins var tilnefnd til Íslensku bók mennta verðlaunanna. Þegar við lifum er tíunda skáldsaga Sigurjóns.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Þegar við lifum

Þegar við lifum

8,190 ISK
8,190 ISK 0 ISK