Þernan

Nita Prose

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

3,990 ISK
3,990 ISK

Þernan Molly Gray er einstök. Hún er hrekklaus og rangtúlkar oft viðbrögð og viðhorf annarra. Amma hennar var vön að útskýra og einfalda heiminn fyrir henni en nú er hún ekki lengur til staðar og Molly þarf að standa á eigin fótum. Hún finnur sig í hlutverki sínu sem þerna á fínu hóteli þar sem hún fær útrás fyrir hreinlætisástríðu sína og reglufestu og verður skotin í barþjóninum.

Líf hennar fer á hvolf daginn sem hún stígur inn í svítu auðmannsins Charles Black: þar er allt á rúi og stúi og hann liggur sjálfur steindauður í hjónarúminu. Grunur fellur á Molly og fyrr en varir er hún flækt í blekkingavef sem þrengist stöðugt að henni. En þegar á reynir stendur hún ekki ein. Tekst Molly að ráða gátuna áður en hún verður dregin fyrir rétt?

Nita Prose hefur lengi starfað sem ritstjóri í Toronto og haft umsjón með fjölda metsölubóka. Þernan er fyrsta skáldsaga hennar og fór beint á metsölulista The New York Times.

Magnea J. Matthíasdóttir þýddi.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Þernan

Þernan

3,990 ISK
3,990 ISK