Þess vegna sofum við

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Þess vegna sofum við er tímamótaverk sem kannar innstu leyndardóma svefnsins og útskýrir hvernig við getum virkjað endurnýjunarmátt hans til að breyta lífi okkar til hins betra.

Svefn hefur ávallt verið einn mikilvægasti þátturinn í lífi okkar, heilsu og langlífi en jafnframt sá sem við vissum einna minnst um, allt þar til vísindalegar uppgötvanir byrjuðu að varpa ljósi á hann fyrir tveimur áratugum. Hinn virti taugavísindamaður og svefnsérfræðingur, Matthew Walker, sýnir okkur nú á eftirminnilegan hátt hve lífsnauðsynlegur svefn er og hvernig hann styrkir hæfileika okkar til að læra og taka ákvarðanir, endurkvarðar tilfinningar, eflir ónæmiskerfið, stillir matarlystina og ýmislegt fleira.

Þess vegna sofum við er snilldarleg, hrífandi, áreiðanleg og afskaplega aðgengileg bók sem kennir lesandanum að skilja og meta svefn og drauma á alveg nýjan hátt.

Dr. Matthew Walker er prófessor í taugavísindum og sálfræði við Kaliforníuháskóla í Berkeley, forstjóri Svefnrannsóknarstöðvarinnar þar og fyrrverandi prófessor í geðsjúkdómafræði við Harvard háskóla.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Þess vegna sofum við

Þess vegna sofum við

3,990 ISK
3,990 ISK 0 ISK