Þín fornaldar frægð
Illugi Jökulsson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Illugi skoðar hér hvaðan landnámsfólkið kom, samkvæmt Landnámu, og athugar stöðu þræla, gerð bæja, skipakostinn, yfirráð norrænna manna á Bretlandseyjum og fleira. Aðallega tekur hann þó saman frásagnir Landnámu um það landnámsfólk sem er meira en nafnið tómt. Og sú mynd sem Landnámuhöfundar draga upp af landnámsfólki mun koma ýmsum á óvart.
Fræðimenn hafa fyrir löngu áttað sig á að heimildagildi Landnámu er ekki jafn mikið og eitt sinn var talið. En hvaða mynd er teiknuð upp í bókinni af feðrunum frægu (og einstaka móður)?
Lýsir hún í raun og veru frjálsræðis hetjunum góðu sem hér settust að í blómguðu dalanna skauti, ukust að íþrótt og frægð og undu svo glaðir við sitt?
Illugi Jökulsson skoðar hér hvaðan landnámsfólkið kom, samkvæmt Landnámu, og athugar stöðu þræla, gerð bæja, skipakostinn, yfirráð norrænna manna á Bretlandseyjum og fleira.
Aðallega birtir hann þó og tekur saman frásagnir Landnámu um það landnámsfólk sem er meira en nafnið tómt.
Og sú mynd sem Landnámuhöfundar draga upp af landnámsfólki og samfélagi þess mun koma ýmsum í opna skjöldu.
Stórfróðleg bók og skemmtileg.
Myndir: María Elínardóttir
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Þín fornaldar frægð