Þögla ekkjan
Sara Blædel
ouise Rick er nýr yfirmaður færanlegrar rannsóknardeildar dönsku lögreglunnar. Fyrsta málið sem hún tekst á við snýst um morð á kráareiganda á Fjóni. Lögreglan á staðnum hefur fáar vísbendingar en þegar Louise setur af stað nákvæma rannsókn á heimili konunnar breytist allt. Þvert gegn vilja sínum neyðist Louise til að leita aðstoðar hjá gömlum kollega, Erik Nordstrøm, en þau hafa ekki hist eftir að þau slitu sambandi sínu á strönd á Tælandi. Gömul vinkona Louise, blaðakonan Camilla Lind, grefur upp upplýsingar um ungan mann sem lést hálfu ári áður – upplýsingar sem munu hafa örlagaríkar afleiðingar fyrir þá sem tengjast málinu.
Bækur Söru Blædel um lögreglukonuna Louise Rick hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi sem og um víða veröld og hafa setið í efstu sætum metsölulista hér eins og annars staðar.
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Þögla ekkjan