Þú sem ert á jörðu
Nína Ólafsdóttir
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/
Þú sem ert á jörðu
Um bókina
Í þessari mögnuðu skáldsögu fylgjum við lífshlaupi konu sem elst upp á heimskautasvæði á tímum mikilla umhverfis- og samfélagsbreytinga. Líf hennar tekur stakkaskiptum og hún flækist inn í atburðarás sem flytur hana yfir heimshöfin. Á einmanalegri ferð sinni um ólík vistkerfi sér hún gjörbreyttan heim og rifjar upp örlög horfinna ástvina, sem og heimsins sem hún kveður.
Þú sem ert á jörðu er hugleiðing um hamfarahlýnun, útdauða og mannmiðaða sýn á veröldina. Hér er maðurinn ekki guð heldur tilheyrir náttúrunni og er jafn háður kenjum hennar og aðrar lífverur á jörðinni.
Umsagnir
Það eiga allir að lesa þessa bók, þetta er bókin sem við viljum að allir lesi og hugsi um. - Ragnheiður Birgisdóttir / Morgunblaðið
Besta frumraunin, besta bók ársns, besta skáldsaga ársins. Mestur þungi, mest undir, það er heill heimur undir í þessari bók. - Árni Matthíasson / Morgunblaðið
Fyrir lesendur sem…
- fíla hægar, ljóðrænar og stemningsríkar skáldsögur
- hafa áhuga á tengslum manns og náttúru í nútímasamhengi
- vilja heimspekilegar sögur sem hvetja til umhugsunar
Nánari upplýsingar
- Höfundur: Nína Ólafsdóttir
- Útgefandi: Mál og menning
- Tungumál: Íslenska
- Flokkur: Íslensk skáldsaga
ISBN: 9789979353256
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Þú sem ert á jörðu
4,890 ISK
4,890 ISK
0 ISK
/