Þú sérð mig ekki
2,990 ISK
Höfundur Eva Björg Ægisdóttir
Þessi vara er ekki fáanleg eins og er
Snæbergsfjölskyldan er efnamikil, voldug og virt í samfélaginu. Allt virðist leika í lyndi, en þegar stórfjölskyldan sameinast í tilefni af afmæli ættföðurins á nýju hóteli á Snæfellsnesi koma brestir í ljós. Rifið er ofan af gömlum sárum og leyndarmál fortíðarinnar leita upp á yfirborðið. Á meðan veisluhöldin standa sem hæst versnar veðrið og í gegnum hríðina heyrast skelfileg öskur.
Eva Björg Ægisdóttir hefur á fáum árum skipað sér í framvarðasveit íslenskra glæpasagnahöfunda. Marrið í stiganum hlaut virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands sem frumraun ársins 2021. Útgáfurétturinn á bókum hennar hefur verið seldur víða um lönd, meðal annars til Þýskalands þar sem öll helstu forlög landsins bitust um að fá að gefa bækurnar út.
„Framúrskarandi.“ The Times um Marrið í stiganum
„Hrollvekjandi, greip mig föstum tökum og er með vendingum sem komu mér algjörlega í opna skjöldu. Frábær!“ Shari Lapena (höfundur metsölubókarinnar Hjónin við hliðina um Stelpur sem ljúga)
⭐️⭐️⭐️⭐️ Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu (um Næturskugga)