Þuríður formaður

Margaret Willson

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

8,990 ISK
8,990 ISK 0 ISK

Þuríður formaður (1777–1863) var einstök kona á sínum tíma. Hún fór ung til sjós og var lengi aflasæll skipstjóri. Hún sótti rétt sinn og annarra fyrir dómstólum og átti stóran þátt í að upplýsa hið alræmda Kambsrán. En þrátt fyrir óvenjulegt hugrekki, ósérhlífni og óbilandi seiglu slapp hún ekki undan hörðum veruleika nítjándu aldar. Ævilok hennar sem ómagi voru fjarri þeirri virðingu sem hún hafði unnið sér til.
Áhrifamikil frásögn, skrifuð á litríku máli, um sannkallaðan kvenskörung sem lét hvorki hefðir né valdsmenn setja sér skorður.
Jónína Margrét Guðnadóttir íslenskaði.

Margaret Willson sameinar sögulegar heimildir og sterka frásagnarlist í áhrifamikilli sögu um Þuríði formann, eina merkustu sjókonu Íslands. Loks fær þessi óvenjulega kona þá viðurkenningu sem hún á skilið.“ Gísli Pálsson, prófessor emeritus í mannfræði við Háskóla Íslands

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Þuríður formaður

Þuríður formaður

8,990 ISK
8,990 ISK 0 ISK