Í texta Wollstonecraft er að finna beitta samfélagsádeilu og höfundurinn var að mörgu leyti á undan sinni samtíð. Þótt tíðarandinn í verkinu sé sá sem ríkti við lok 18. aldar eiga hugmyndir þess fullt erindi við okkur enn í dag.

Verkið býr yfir fjölmörgum áhugaverðum heimspekilegum hugmyndum um tengsl rökhugsunar og tilfinninga, um hvatalíf manneskjunnar og ýmislegt annað er varðar samfélag, stjórnmál og mannlega hegðun.