Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Tinni - Krabbinn með gylltu klærnar

3,690 ISK

Höfundur Hergé

Rifinn miði af dularfullri krabbadós leiðir Tinna og Tobba um borð í flutningaskipið Karaboudjan. Farmur þess reynist vera ansi vafasamur og í fyrstu líst Tinna ekki mikið betur á skipstjórann, Kolbein kaftein.

Fyrsta bókin um Tinna kom út í Belgíu 1930 og æ síðan hefur blaðamaðurinn snjalli og félagar hans heillað lesendur um allan heim, ekki síst hér á landi. Ævintýri Tinna eru nú endurútgefin í frábærri þýðingu Lofts Guðmundssonar en í nýju og handhægu broti.

Útgáfuár: 2010 - Útgefandi: Iðunn