Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Treystu mér

4,490 ISK

Höfundur Anders Roslund

Allt leikur í lyndi hjá Ewert Green. Í fyrsta sinn í þrjátíu ár er hann í sambandi við konu sem hann vill hafa sig til fyrir.
Hvernig í ósköpunum gat þá allt breyst í martröð með banvænum sprautuskömmtum, líffæraviðskiptum, þrælahaldi og mannránum? Og hvernig varð þetta allt saman til þess að manneskja nákomin Evarts var myrt?
Með þessum spennutrylli staðfestir Anders Roslund enn á ný að hann er einn af allra bestu glæpasagnahöfundum samtímans.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
„Spennusögur Roslunds eru með þjóðfélagslegum undirtóni ... í anda forvera hans, Stiegs Larsson og Sjöwahl & Wahlöö, en hann er betri stílisti en þau. ... Treystu mér er óhugnanlega góð lestarupplifun.“ – Jyllands-Posten
„Anders Roslund skrifar af snerpu og býr yfir ómótstæðilegum hæfileika til að byggja upp spennu.“ – Dagens Nyheter
„Eins og jafnan hjá Roslund er frásögnin eiturskörp og brálæðislega spennandi.“ –Expressen
* * * * * – Jyllands-Posten