Trönurnar fljúga suður
Lisa Ridzén
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Bo finnur að líf hans er að fjara út. Líkami hans er að gefa sig og kyrrlátt líf hans er aðeins rofið af daglegum heimsóknum heimaþjónustunnar. Hendur hans verða brátt of máttlitlar til að opna boxið dýrmæta með sjali eiginkonu hans, Frederiku, sem þjáist af alzheimer-sjúkdómnum, en sjalið ber enn ilm hennar. Sem betur fer hefur hann ennþá tryggan félaga sinn, hundinn Sixten, sér við hlið – en nú krefst sonur hans þess að hann láti hundinn fara. Það fær Bo til að hugsa um líf sitt, föðurhlutverkið og hvernig hann hefur tjáð ást sína um dagana.
Trönurnar fljúga suður var valin bók ársins í Svíþjóð árið 2024 og hefur síðan farið sigurför um heiminn, hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og setið mánuðum saman í efstu sætum metsölulista.
Heimir Pálsson íslenskaði.
„Hjartnæm og áhrifamikil.“ Dagbladet
„Stórfengleg skáldsaga.“ Nettavisen
„Töfrandi lestrarupplifun.“ Camilla Läckberg
„Áhrifamesta bók sem ég hef lesið — hjartskerandi en jafnframt hjartahlý.“ Jacqueline Wilson
„Svo hjartnæm, fyndin, falleg og vitur … einstök bók.“ Richard Osman
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Trönurnar fljúga suður