Trúnaðartraust

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim
🚚 Áætlaður afhendingartími er 1 - 3 virkir dagar

Bresk kona drukknar í sundlaug við sumarbústað á vesturströnd Danmerkur. Var þetta slys – eða morð? Ef hún var myrt hver gat gerandinn verið? Afbrýðisöm systir hennar? Ósáttar vinkonur? Ástkær eiginmaður? Eða pabbi hennar sem átti í miklum fjárhagskröggum og þurfti á þeim fjármunum að halda sem líftrygging dóttur hans myndi færa honum? Eða einhver allt annar?
Danski blaðamaðurinn Nora Sand flækist inn í málið þegar það kemur til kasta dómstóla á Englandi. Þegar fleiri láta lífið verður hún sjálf skyndilega skotmark samviskulauss morðingja sem gerir allt til að bjarga eigin skinni.

Bækurnar um Noru Sand hafa slegið í gegn og hafa verið gefnar út í 16 löndum. Trúnaðarstraust er sjötta bókin um hana sem kemur út á íslensku. Hinar fimm eru Stúlkurnar á Englandsferjunni, Kona bláa skáldsins, Nornadrengurinn, Þagnarbindindi og Hinir ósýnilegu.

Lone Theils (f. 1971) var lengi fréttaritari danskra blaða í London en býr nú í Danmörku og sinnir ritstörfum.

Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.


„Það er hrein unun að lesa Lone Theils ... Maður vill í alvöru verja tíma með Noru Sand, því hún er svo svo frábær söguhetja.“

     – Krummeskrummelurer

„Það er einstök skemmtun að vera í félagsskap Nöru Sand og Lone Theils.“

     – Bokfidusen

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Trúnaðartraust

Trúnaðartraust

4,790 ISK
4,790 ISK 0 ISK