Tumi fer til tunglsins
Jóhann G. Jóhannson
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
„Til tunglsins hefur mig svo lengi langað…“
Tumi litli getur ekki sofnað. Hann þiggur boð karlsins í tunglinu um að skreppa til hans „á góðra vina fund“ og svífur af stað í rúminu sínu út í vornóttina. Á vegi hans verða forvitnir fuglar, lífsreyndir regndropar, börn frá öllum heimshornum og sjálfur karlinn í tunglinu sem hefur lengi gefið jarðarbúum gætur og á nú mikilvægt erindi við börnin.
Þessari ævintýraferð er hér lýst í skemmtilegu söguljóði og söngvum. Höfundurinn, Jóhann G. Jóhannsson, var um árabil tónlistarstjóri í leikhúsum borgarinnar þar sem hann lagði eitt og annað af mörkum á sviði barnamenningar, t.d. tónlistina við ævintýrasöngleikinn Skilaboðaskjóðuna.
Bókin er listilega myndlýst af Lilju Cardew, sem nýlokið hefur myndlistarnámi í Englandi þar sem hún vann 1.verðlaun í samkeppni um kápumynd fyrir útgáfurisann Penguin.
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Tumi fer til tunglsins