Tunglið tunglið taktu mig

Þorgrímur Þráinsson

2,990 ISK
2,990 ISK

Einlæg og skemmtileg saga eftir Þorgrím Þráinsson. Máney á heima í sveitinni hjá ömmu og afa, og hún vill hvergi annars staðar vera. Þegar Sólmundur flytur á næsta bæ er hann eins og geimvera og gargar á alla. En þegar þau bjarga álftaregginu frá tófunni breytist allt. Það besta er þó að Sólmundur á litla systur sem getur kannski orðið systir Máneyjar líka.

Þorgrímur hefur skrifað fjölda vinsælla barna- og unglingabóka. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Ertu guð, afi? og Margt býr í myrkrinu, hefur tvívegis verið sæmdur Bókaverðlaunum barnanna og tók á móti Viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Tunglið tunglið taktu mig

Tunglið tunglið taktu mig

2,990 ISK
2,990 ISK