Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Tvöfalt prjón

2,990 ISK

Höfundur Guðrún María Guðmundsdóttir

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Glæsileg bók fyrir alla prjónara og sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Með þessari tækni er hægt að nota flíkina báðum megin – tvær flíkur í einni! 40 fjölbreyttar uppskriftir; peysur, sokkar, vettlingar, treflar, húfur, hólkar, sjöl, teppi og margt fleira. Tvöfalt prjón er þekkt víða um heim en hefur lítið verið kynnt hér á landi. Hvert stykki er prjónað með tveimur hliðum á sama tíma og því hægt að snúa flíkinni á báða vegu. Með þessari tækni er hægt að prjóna nánast hvað sem er; peysur, sokka, vettlinga, trefla, húfur, hólka, sjöl, teppi og svo framvegis. Hér má finna 40 fjölbreyttar uppskriftir, auk ítarlegs leiðbeiningakafla um þessa sérstöku prjónaaðferð. Höfundur vinnur með gömul íslensk munstur í bland við færeysk munstur og útkoman er glæsileg.

Guðrún María Guðmundsdóttir hefur haldið fjölda prjónanámskeiða á undanförnum árum og meðal annars kennt tvöfalt prjón. Áhugi á þessari prjónaaðferð fer mjög vaxandi og er þetta fyrsta bókin sem kemur út um þetta efni á íslensku.