UFO 202
Gunnar Dan
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
7,890 ISK
7,890 ISK
0 ISK
/
HÖFUM VIÐ EINHVERN TÍMANN VERIÐ EIN? Í tímans rás hefur geimverutilgátan í sínum ótal myndum byggst á hug myndum um heimsóknir gesta utan okkar sólkerfis en nú er umræðan að breytast. Trúarleg heimsmynd mannsins er skoruð á hólm. Hulan milli þess andlega og efnislega þynnist hratt og efnisveruleikinn eins og við höfum upplifað hann verður annarlegri í augum okkar. Samhliða UFO-uppljóstrunum vestanhafs og víðar um heim erum við farin að spyrja okkur spurninga sem snerta uppruna okkar og tilgang. Fólk sem hefur áður verið meira og minna rofið frá því óáþreifanlega er nú í auknum mæli að upplifa ríka þörf til innri og ytri breytinga. Þingmenn vestanhafs umorða gildishlaðin hugtök eins og „geimverur“ og fjalla þess í stað um þessar verur sem „fjölvídda“. Gunnar Dan fjallar hér með frumlegum og grípandi hætti um fjölvíddarverur, fljúgandi furðuhluti og fyrirbæri, tengsl efnis við skammtaheiminn og upplausn hugmyndafræðilegra ramma. Bókin er sjálfstætt framhald UFO101 sem kom út árið 2025. Vilt þú rjúfa skilyrðingarnar sem halda aftur af þér?
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
UFO 202
7,890 ISK
7,890 ISK
0 ISK
/