Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Um ánauð viljans

6,490 ISK

Höfundur Marteinn Lúther

Klofningur Lúthers frá kaþólsku kirkjunni er einn stærsti atburðurinn í sögu kristninnar og markar um leið tímamót í sögu Evrópu. Gagnrýni Lúthers, sem beindist meðal annars gegn aflátssölu, veraldarvafstri kirkjunnar og meintum óskeikulleika páfa, auk túlkunar kirkjunnar á ýmsum atriðum kristindómsins, varð til þess að hann var settur út af sakramentinu árið 1521. Hann hélt hins vegar áfram að berjast af einurð fyrir umbótum og deildi hart á andstæðinga sína í ritum sínum.

Um ánauð viljans er ávöxtur ritdeilu Lúthers við Erasmus frá Rotterdam. Hér kristallast þau átök sem voru að eiga sér stað á milli siðbótarinnar og fornmenntastefnunnar, sem Erasmus tilheyrði. Lúther fjallar í verkinu um ýmis efni sem hann greindi á um við kirkjuyfirvöld, svo sem útskúfun og útvalningu, náðina, fyrirgefninguna og eðli guðs, en meginþemað er mannlegur vilji sem hann taldi að væri fjötraður af þeirri nauðsyn sem felst í stöðu mannsins gagnvart Guði.

Verkið er hér gefið út í tveimur bindum og fylgja því bæði inngangur eftir Sigurjón Árna Eyjólfsson, þar sem röksemdir Lúthers eru teknar saman og skýrðar, og ritgerðin Lúther og latínan þar sem Gottskálk Þór Jensson fjallar um latínumenningu í kringum siðaskipti.