Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Um trúarbrögðin

3,620 ISK

Höfundur Friedrich Schleiermacher

Um trúarbrögðin – Ræður handa menntamönnum sem fyrirlíta þau er eitt þekktasta rit þýska guðfræðingsins og heimspekingsins Schleiermachers. Með þessu riti blandaði hann sér inn í umræðu um trúarheimspeki sem þá stóð í blóma, á 19. öld. Örfáum árum áður höfðu Johan Gottlieb Fichte og Immanuel Kant skrifað merk rit um eðli trúarinnar, og brást Schleiermacher við umfjöllunum þeirra.

Kant skýrði trúarbrögð, í takt við anda upplýsingarinnar, sem kerfi siðaboða og frumspekilegra kenninga. En Schleiermacher leit svo á að þessi skilningur á trú byggðist á kaldri og tilfinningalausri skynsemishyggju. Í Um trúarbrögðin ræðst hann gegn þessum hugmyndum með því að skilgreina trúarbrögð með tilvísun í innstu upplifanir og tilfinningar mannsins.

Hugsun Schleiermachers hefur haft gífurleg áhrif á hugmyndir fólks um trú og trúarheimspeki. Hér birtist kjarni þessara mikilvægu hugmynda hans í læsilegri þýðingu Jóns Árna Jónssonar.

Inngang ritar Sigurjón Árni Eyjólfsson.