Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Umbrot - jarðeldar á Reykjanesskaga

2,590 ISK

Höfundur Ari Trausti Guðmundsson, Ragnar Th.

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Jarðvísindamaðurinn Ari Trausti Guðmundsson og ljósmyndarinn Ragnar Th. Sigurðsson draga hér upp einstæða mynd af eldgosinu á Reykjanesskaga frá öllum hliðum, rekja sögu eldvirkni á svæðinu og útskýra hvað á sér stað undir yfirborðinu.

Klukkan 20:45 föstudaginn 19. mars 2021 opnaðist gossprunga í Geldingadölum á Reykjanesskaga. Eldgosið átti sér talsverðan aðdraganda og tíðir jarðaskjálftar höfðu vakið ugg í brjósti íbúa í grendinni. Þar með lauk kyrrðartímabili sem varað hafði í nærri 800 ár. Sjónarspilið skammt frá fjömennustu byggðum landsins dró að sér þúsundir sem hrifust af krafti og fegurð gossins.