Valli litli rostungur - Ævintýri byggt á sannri sögu
Helgi Jónsson, Anna Margrét Marinósdóttir, Edda E. Magnusdóttir, Freydís Kristjánsdóttir myndskr.
📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.
Dag einn birtist óvænt lítill rostungur á bryggju í bæ við strendur Íslands. Þetta er hann Valli litli sem er svangur eftir langt ferðalag. Það er ekki auðvelt að vera sex ára áttavilltur rostungur sem hefur týnt mömmu sinni. Skyldi hún enn vera á lífi? Lestu og hlustaðu á hljóð sjávardýranna. Þú getur líka hlustað á Jóhann Sigurðarson lesa söguna.
Þetta skemmtilega ævintýri er byggt á sannri sögu. Valli er nefnilega alvöru rostungur og heimsótti eitt sinn Ísland. Við fylgjum Valla litla í ævintýrum sínum um Íslandsstrendur. Eftir að bæjarbúar á Höfn í Hornafirði hafa hresst hann við, syndir hann af stað hringinn í kringum landið og hittir fyrir mjög svo áhugaverð dýr og mannfólk.
Sagan birtist okkur ljóslifandi með frábærum teikningum Freydísar Kristjánsdóttur og alvöru dýrahljóðum úr undirdjúpum. Að auki fylgir hljóðbókaútgáfa í lestri Jóhanns Sigurðarsonar leikara. Við getum því bæði lesið - og hlustað!
Deila

Af hverju Salka?
Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.
Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Valli litli rostungur - Ævintýri bygg...