Vatnajökulsþjóðgarður

Snorri Baldursson

7,690 ISK
7,690 ISK

Hvítur haddur Vatnajökuls er höfuðprýði Íslands. Hann virðist eilífur en ekki er allt sem sýnist. Ofsafengnir jarðeldar rjúfa skörð í jökulísinn og landið í kring með tilheyrandi hraunrennsli, öskufalli og jökulhlaupum og bráðahlýnun jarðar ógnar sjálfri tilvist jökulsins. Þessi síkvika deigla elds og íss er þungamiðja Vatnajökulsþjóðgarðs. Þjóðgarðurinn var stofnaður árið 2008 og lýstur heimsminjasvæði, arfleið alls mannkyns, árið 2019.

Í þessari bók lýsir Snorri Baldursson líffræðingur einstakri náttúru, sögu og uppbyggingu þjóðgarðsins í máli og myndum og fjallar um hvaða tilkall hann á til æðstu gæðavottunar sem veitt er dýrmætum landsvæðum á heimsvísu.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Vatnajökulsþjóðgarður

Vatnajökulsþjóðgarður

7,690 ISK
7,690 ISK