Veisla þrjú

Steinunn Sigurðardóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

8,690 ISK
8,690 ISK 0 ISK

Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.


Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit. Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnugri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.

 

Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Veisla þrjú

Veisla þrjú

8,690 ISK
8,690 ISK 0 ISK