Vera til vandræða leggur sig fram
Joanna Nadin, Jess Mikhail
2,190 ISK
2,190 ISK
/
Þetta er önnur bókin í nýjum bókaflokki um hrakfallabálkinn Veróniku Jónsdóttur. Í hverri bók eru þrjár sjálfstæðar sögur fyrir krakka sem eru búin að ná góðum tökum á lestri.
Vera segist alls ekki vera til vandræða en stundum reynast frábæru hugmyndirnar hennar ekki eins vel og hún átti von á. Vandræðin með Ronna rottu voru til dæmis aðallega Sigurbjarti að kenna og hvernig átti henni að koma til hugar að amma dytti um þjófagildurna hennar og lenti á spítala og hvernig átti hún að vita að allt yrði dýrvitlaust þegar hún fór með köttinn Barða á spítalann … ekkert af þessu var henni að kenna.
Hún er bara svo mikill segull fyrir vandræði!
Deila

Þú skoðaðir líka
-
Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!
Vera til vandræða leggur sig fram
2,190 ISK
2,190 ISK
/