Vetrarbókin

Vilborg Davíðsdóttir

📚 Hægt er að sækja í búðina eða fá vörurnar sendar heim.
🚚 Sendum frítt í póstbox ef pantað er fyrir meira en 10.000 kr.

8,990 ISK
8,990 ISK 0 ISK

Vetrarbókin er fjölbreytt, skemmtileg og einstaklega fróðleg bók þar sem dimmasta árstíðin er í brennidepli. Allt frá landnámi hafa Íslendingar þurft að finna leiðir til að takast á við skammdegið og enn er það mörgum þung raun. En þó að veturinn sé langur og strangur, kaldur og dimmur, er hann líka kynngimagnaður; heiðnar vættir fara á stjá og fornar sögur lifna við.


Vilborg Davíðsdóttir hefur skrifað fjölda vinsælla skáldsagna sem gerast á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og býr yfir viðamikilli þekkingu á lífsháttum landnemanna, keltneskra og norrænna. Hér leiðir hún lesendur á fund fortíðar og kannar sagnaheim fyrri alda í leit að því hvað kom formæðrum okkar og -feðrum að gagni í glímunni við íslenskan vetur. Saman við frásögnina fléttar Vilborg þræði úr eigin lífi svo úr verður heillandi ferðalag í gegnum myrkrið, allt frá veturnóttum þar til dag fer loks að lengja á ný.

Af hverju Salka?

Salka er sjálfstæð bókabúð í Reykjavík með handvaldar bækur,
persónulega þjónustu og huggulega stemningu. Í verslun okkar á Hverfisgötu er
bar og við sendum bækur heim að dyrum.

Þú skoðaðir líka

  • Sendum frítt í póstbox ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira!

Vetrarbókin

Vetrarbókin

8,990 ISK
8,990 ISK 0 ISK