Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Uppselt

Við skulum ekki vaka

3,990 ISK

Höfundur Heine Bakkeid

Þessi vara er ekki fáanleg eins og er

Thorkild Aske heldur með systur sinni til Íslands að heimsækja aldraðan föður þeirra, Úlf, sem glímir við krabbamein. Úlfur er mikill umhverfissinni og á að baki litríka ævi í endalausu stríði við íslensk stjórnvöld.

Á Íslandi sogast Thorkild inn í morðmál sem tengjast umhverfisvernd og virkjanaframkvæmdum. Æsilegir leikar berast um Reykjavík, Vesturland, Strandir, Norðurland og hálendið. Ískyggilegir draugar úr fortíð íslenskra deilna um umhverfismál láta á sér kræla.

Við skulum ekki vaka er þriðja bókin í magnþrungnum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar tvær – Ég mun sakna þín á morgun og Hittumst í paradís – hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.