Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk

Villinorn 4 - Blóðkindin

2,990 ISK

Höfundur Lene Kaaberbøl

Ef mamma Klöru hefði fengið að ráða, hefði dóttir hennar aldrei orðið villinorn. Hún er hrædd um að eitthvað slæmt hendi Klöru og það er ekki að ástæðulausu. Veröld hins villta er
hættulegur staður – ekki síst núna þegar Bestla Blóðkind er að brjótast út úr prísundinni sem hefur haldið henni fanginni í 400 ár.

Blóðkindin er fjórða bókin af sex í danska bókaflokknum Villinorn um Klöru og baráttu hennar við háskaleg öfl í náttúrunni eftir verðlaunahöfundinn Lene Kaaberbøl.

Villinornarbækurnar hafa komið út á 17 tungumálum.